Sorglegt var að horfa uppá í ásbyrjun 2008 hvernig forseti Íslands og stuðningsmenn hans misnotuðu fjölmiðlaveldi sitt til að tryggja forsetanum endurkjör í fjórða kjörtímabilið án kosninga. Hér er úrdráttur úr bréfi mínu 24 janúar 2008 til dómsmálaráðuneytisins þar sem atburðarrásinni var lýst:
Heilbrigt lýðræði getur ekki þrifist nema með reglubundnum kosningum á jafnréttisgrundvelli. Aðdragandi kosninga er mikilvægur og dýrmætur tími fyrir þjóð og valdhafa að skiptast á skoðunum í opnum og frjálsum umræðum. Fjórða valdið fjölmiðlarnir gegna þar mikilvægu hlutverki. Þeir sem ráða fjölmiðlum þjóðarinnar þurfa að axla þá ábyrgð að misnota ekki valdið til að hygla einum ...