1995 – Stofnar samtökin Friður 2000. Flýgur með hjálpargögn og jólapakka með
kveðjum frá Íslenskum börnum fórnarlamba Chernobyl og stríðhrjáðra barna í
Sarajevo. Hugmyndin verður öðrum hvatning og bílalestir með hjálpargögn og slíka
jólapakka berast næstu árin til Chernobyl og á stríðshrjáð svæði með bílalestum
frá ýmsum stöðum.
1996 – Gefur út bókina “Virkjum Bessastaði” dreift á
öll heimili landsins. Skorar á frambjóðendur að taka upp friðarmálin. Þegar
enginn þeirra bregst við áskoruninni lýsir Ástþór sjálfur yfir framboði og notar
síðan beinar sjónvarpsútsendingar til að fá Ólaf Ragnar Grímsson til að gefa
kjósendum loforð um að beita embættinu í friðarmálum verði hann kjörinn.
Forsetinn sveik kosningaloforðið í 12 ár. Í aðdraganda kosninga tók Ástþór við
Gandhi mannúðarverðlaunum og afhenti Clinton bandaríkjaforseta eintak af Virkjum
Bessastaði.
1997 – Skorar á heimsbyggðina frá Baghdad að mótmæla
fyrirhugaðri árás á Írak. Ástþóri tókst að koma skilaboðunum í gegnum CNN, ABC,
CBS og nær alla heimspressuna í 5 daga samfleitt og margsinnis sem aðalfrétt og
forsíðufrétt í erlendum stórblöðum! 1998 er Ástþór sæmdur Heilögum Krossi Grísku
Réttrúnaðarkirkunnar að útnefningu UNESCO eftir að Clinton hætti við innrásina í
kjölfar mikilla mótmæla.
2002 – Ráðamenn vilja að Icelandair flytji vopn
og hermenn fyrir Bush í Írakstríð. Ástþór sendir út viðvörun um hættulegt óðagot
sem geti dregið Íslensk flugfélög inní hryðjuverkastríð. Þá fangelsaður en
sýknaður af Hæstarétti. Hætt við að nota Icelandair flugvélar til
vopnaflutninga.
2006 – Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri stofnar
Friðarstofnun Reykjavíkur. (Ástþór kynnti slíka hugmynd fyrir borgarstjóra árið
1995)
2007 – Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar undirritar samning
um stofnun alþjóðlegs háskóla á Keflavíkurflugvelli er starfi að friðarmálum,
kenni alþjóða- og öryggismál. (Ástþór kynnti hugmyndir að friðarháskóla á
Íslandi árið 1997 eftir að fá stuðning við hugmyndina hjá fjölda fræðimanna
erlendis, síðan í forsetaframboði 2004 og 2006 sendi bæjarstjóranum tillögu að
slíkri starfsemi á Keflavíkurflugvelli).
2007 - Yogo Ono kom frá New York
með friðarsúlu til Viðey (Ástþór kynnti Ísland sem land friðar á fjölda
fyrirlestra í New York, Tokyo og víðar m.a. hjá Sameinuðu Þjóðunum í New York og
í hjá friðarháskóla S.Þ. Costa Rica yfir 9 ára tímabil 1995-2004).
2008 –
Stjórnvöld samþykkja beiðni Palestínumanna um friðarfund á Íslandi og Forseti
Íslands handsalar samkomulagið á Bessastöðum. Ástþór kynnti þessar hugmyndir í
Palestínu og Ísrael árið 2001 og aftur fyrir nánum samstarfsmönnum Yasser Arafat
árið 2004.